42. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 17. mars 2015 kl. 09:00


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 08:46
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 09:04
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 08:59
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 09:04
Sigríður Á. Andersen (SÁA) fyrir Pétur H. Blöndal (PHB), kl. 09:14
Vigdís Hauksdóttir (VigH), kl. 08:59

Birgitta Jónsdóttir vék af fundi kl. 9:10 vegna fundar í utanríkismálanefnd.
Brynjar Níelsson, Karl Garðarsson, Willum Þór Þórsson og Valgerður Bjarnadóttir boðuðu forföll.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:00
Frestað.

2) Starfið framundan Kl. 09:00
Formaður gerði grein fyrir svari Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, til nefndarinnar í tengslum við lekamálið svokallaða. Nefndin ræddi málið.

Formaður fór yfir stöðu nokkurra mála í nefndinni.

3) Önnur mál Kl. 09:20
Áður en Birgitta Jónsdóttir vék af fundi óskaði hún eftir að nefndin tæki til umfjöllunar framgöngu utanríkisráðherra varðandi tilkynningu um að ekki skuli líta á Ísland sem umsóknarríki ESB.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:22